Logo

Gassjálfsali í Langatanga

11. jún. 2026

Nýr gassjálfsali gerir Mosfellingum lífið einfaldara

Olís á Langatanga hefur tekið í notkun nýjan gassjálfsala sem gerir viðskiptavinum kleift að nálgast gas á einfaldan og þægilegan hátt allan sólarhringinn. Með þessari nýjung geta Mosfellingar sótt sér gas hvenær sem er, óháð opnunartíma þjónustustöðvarinnar.

Að sögn Kristjáns Gísla Stefánssonar hjá Olís er markmiðið að mæta þörfum viðskiptavina þegar þeirra er þörf, hvort sem um er að ræða undirbúning fyrir grillveislu, útilegu eða þegar gaskúturinn tæmist á óheppilegum tíma.

Aðgengileg þjónusta allan sólarhringinn

„Hjá Olís höfum við ávallt lagt áherslu á að vera vinur við veginn og veita viðskiptavinum okkar örugga, þægilega og aðgengilega þjónustu hvar og hvenær sem þeir þurfa á henni að halda,“ segir Kristján Gísli.

Hann segir sjálfsalann vera liður í þeirri vegferð að gera daglegt líf fólks einfaldara og tryggja að viðskiptavinir hafi aðgang að þeim vörum sem þeir þurfa þegar þeim hentar best.

Nýsköpun sem hefur sannað sig

Gassjálfsalarnir eru framleiddir af Vendanor og sameina öryggi, nýsköpun og notendavæna þjónustu. Lausnin hefur þegar notið vinsælda víða um land og er hluti af áframhaldandi uppbyggingu Olís og ÓB á sjálfsafgreiðslulausnum.

Fyrir eru gassjálfsalar í Bæjarlind og Suðurhellu og stefnt er að því að fjölga þeim enn frekar á næstu misserum.

Sparnaður fyrir viðskiptavini

Til viðbótar við aukin þægindi er verðið í gassjálfsalanum hagstæðara en á þjónustustöðinni. Viðskiptavinir greiða 5% lægra verð en fullt verð á stöðinni og geta því bæði sparað tíma og peninga.

Með nýjum gassjálfsala á Langatanga styrkir Olís enn frekar þjónustu sína í Mosfellsbæ og tryggir að viðskiptavinir hafi ávallt aðgang að gasi þegar þeir þurfa á því að halda.