Árlegt golfmót Forskots fór fram á Hólmsvelli í Leiru á fimmtudag 27.ágúst Fulltrúar sem standa að sjóðnum léku þar ásamt nokkrum af fremstu kylfingum landsins.
Forskot er afrekssjóður sem hefur frá árinu 2012 stutt við bakið á íslenskum afrekskylfingum. Markmið sjóðsins er að gera styrkþegum auðveldara að æfa og keppa við bestu mögulegu skilyrði, í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi.
Að Forskoti standa Íslandsbanki, Icelandair, Vörður tryggingar, Bláa Lónið, Olís og Golfsamband Íslands. Olís bættist í hópinn á þessu ári.
Átta kylfingar fá úthlutað úr sjóðnum árið 2026: Andrea Bergsdóttir, Dagbjartur Sigurbrandsson, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Haraldur Franklín Magnús, Hlynur Bergsson, Ragnhildur Kristinsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir.
Golfmót Forskots
28. ágú. 2026
Árlegt golfmót Forskots fór fram á Hólmvelli í Leiru á fimmtudag 27.ágúst.
