
Golfmót Olís 2026
11. sep. 2026
Golfmót Olís 2026
Á föstudaginn, 11. september, buðum við hjá Olís viðskiptavinum fyrirtækjasviðs til golfmóts í Golfklúbbi GKG. Yfir 70 manns mættu á svæðið og tóku slaginn, þrátt fyrir að veðrið hafi sannarlega ekki gert það auðvelt fyrir okkur! Rok og rigning skiptust á allan daginn, en það stoppaði engan – gestir mættu úti með bros á vör og góðan húmor í farteskinu.
Það var frábært að fá tækifæri til að hitta svona marga viðskiptavini á léttum nótum, spjalla saman á vellinum og þakka fyrir samstarfið og traustið sem við njótum.
Takk kærlega fyrir daginn – við hlökkum til að sjá ykkur aftur að ári!

