Logo

Haustborgari Grill 66 2026

24. sep. 2026

Haustborgarinn á Grill 66 er með kóresku ívafi

Atli Snær matreiðslumeistari á Komo stendur að baki Haustborgaranum 2026 á Grill 66, þar sem kóreskir bragðtónar, hæfilegur hiti og klassískur hamborgari mætast á girnilegan hátt. Ljósmynd/Aðsend

Grill 66 á Olís kynnir til sögunnar Haustborgarann 2026. Að þessu sinni er það matreiðslumeistarinn Atli Snær, eigandi veisluþjónustunnar og götubitastaðarins Komo, sem hefur lagt Grill 66 lið og hannað girnilegan borgara í anda þess sem hefur gert Komo svo vinsælan meðal sælkera.

Atli Snær hefur um árabil verið áberandi í íslenskri götubitamenningu og hlotið fjölda verðlauna fyrir rétti sína, bæði hér heima og erlendis. Má þar nefna að hann keppti í úrslitum European Street Food Awards 2024, þar sem 42 keppendur frá 38 löndum tóku þátt. Þar hlaut Komo fyrstu verðlaun fyrir „besta smáréttinn“ og lenti í 2. sæti í flokknum „besti sterki rétturinn“.

Kóreskir bragðtónar setja svip sinn á Haustborgarann, þar sem hiti, sæta og umami mætast í safaríkum hamborgara með tvöföldum gouda-osti. Ljósmynd/Aðsend

Skemmtilega öðruvísi hamborgari

En hvað var það sem Atli Snær lagði upp með þegar hann tók að sér að setja saman haustborgarann fyrir Grill 66?

„Markmiðið var að búa til skemmtilegan og öðruvísi borgara. Ég sæki mikinn innblástur í asíska matargerð og finnst alltaf gott að hafa smá „kick“ í matnum,“ segir Atli Snær.

Haustborgarinn ber þess glöggt merki. Á honum er Komo Hot Sauce, gerð úr kóresku chili, sem gefur honum í senn sætu, hita og umami. Þar við bætast kimchi og kimchi-majónes, tvöfaldur gouda-ostur og pikklaðar gúrkur. Komo Hot Sauce vann einmitt kosningu um vinsælustu sósuna á Reykjavík Chili Festival fyrr á þessu ári.

Atli Snær hefur oft sótt sér innblástur til veitingastaða og matreiðslumanna í Los Angeles, þar sem ólíkar matarhefðir mætast og hafa skapað einstaka götubitasenu.

„Þar mætast meðal annars kóresk, bandarísk og mexíkósk matargerð og úr verður ótrúlega skemmtilegur suðupottur af götubitum. Svo skemmir ekki fyrir að Los Angeles er endastöðin á Route 66. Mér fannst það skemmtileg tenging við Grill 66.“

Innblástur til Suður-Kóreu

Atli Snær er menntaður matreiðslumaður og hefur langa og víðtæka reynslu úr veitingageiranum hér heima og erlendis. Auk þess að reka Komo ásamt fjölskyldu sinni er hann yfirkokkur Zócalo-veitingastaðanna í Danmörku og Svíþjóð og rekstrarstjóri Wok to Walk á Íslandi.

„Okkur fannst kominn tími á að sækja innblástur til Suður-Kóreu, þar sem einfaldleiki og kraftmikið bragð fara saman á skemmtilegan hátt. Hamborgarinn er öðruvísi en aðrir borgarar á matseðli Grill 66 með sitt eigið yfirbragð og bragð sem kemur skemmtilega á óvart. Þetta er borgari sem ég er sjálfur mjög hrifinn af og vonandi verður hann líka í uppáhaldi hjá viðskiptavinum,“ segir Haukur Víðisson, veitingastjóri Olís.