Jafnvægisvogin 2026
Olís hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem við höfum verið á sem er að skapa vinnustað þar sem við höfum öll jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir fyrirtækið, viðskiptavini okkar og samfélagið allt.
Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og ekki síst okkar frábæra starfsfólki, sem hefur lagt sitt að mörkum til að gera þetta að veruleika.
Jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur heldur stöðug vinna, og við ætlum að halda áfram að gera enn betur.
Á myndinni eru Alejandro A. Catayas starfsmaður Olís í Ánanaustum, Ingunn Svala Leifsdóttir framkvæmdastjóri Olís og Brynhildur Rós Birgisdóttir starfsmaður Olís í Norðlingaholti
#Losumumhnútinn
