Haft var samband við okkur hjá Olís og kannað hvort við vildum taka þátt í verkefninu Jól í skókassa. Olís svaraði kallinu og gaf, í samstarfi við Ó. Johnson & Kaaber, tannbursta og tannskrem ásamt Olís húfum.
Jól í skókassa snýst um að pakka jólagjöfum í skókassa sem sendir eru til barna í Úkraínu. Öllum gjöfum er safnað í gám sem sendur er til Úkraínu, þar sem tengiliðir verkefnisins sjá um að útdeila þeim.
Verkefnið hefur að jafnaði sent 4.000-5.000 kassa á ári. Nú er sent í 23. skipti og markmiðið er að ná yfir 5.000 kössum.
„Við erum afar þakklát öllum sem taka þátt í þessu verkefni með okkur. Það er afar dýrmætt og góður boðskapur að kenna börnum okkar og barnabörnum að hugsa til þeirra sem minna mega sín. Þetta er hefð sem skapast í mörgum fjölskyldum, skólum, félagsheimilum og vinnustöðum, að taka sér tíma og pakka í jólakassa sem komið er með til okkar,“ segir Ingibjörg Valgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Jól í skókassa.
Olís þakkar Ó. Johnson & Kaaber fyrir samstarfið og þeim sem lögðu verkefninu lið.
