
Króksmót ÓB
19. jún. 2026
Króksmót ÓB fer fram á Sauðárkróki 20. – 21. Júní. Mótið hefur skipað sér fastan sess í fótboltasumri stúlkna í 6. Flokki. Keppendur munu koma saman víðs vegar að af landinu og taka þátt í skemmtilegri mótshelgi þar sem hverju liði gefst kostur á að spila marga leiki á stuttum tíma.
Við gefum þessum flottu stelpum ÓB-Olís handklæði áfram því að dreifa auðvitað Olís með dýfu.
Samhliða mótinu fer einnig fram hraðmót fyrir 8. flokk, þar sem við sjáum yngstu kynslóðina stíga sín fyrstu skref á vellinum.
Eitt af því sem gerir Króksmót ÓB sérstaklega þægilegt og fjölskylduvænt er að aðstæðurnar á Sauðárkróki eru til fyrirmyndar.
Auk fótboltaleikjanna býður mótið upp á skemmtilega viðbótardagskrá fyrir þátttakendur. Þar má meðal annars nefna battamót og skotkeppni sem haldin eru samhliða leikjum mótsins. Grill 66 veitir verðlaun fyrir þær greinar á kvöldvöku á laugardagskvöldi, þar sem keppendur koma saman, skemmta sér, kynnast öðrum þátttakendum og búa til góðar minningar með liðinu sínu.

