
Olís og Greenfit
16. apr. 2026
Olís hefur hafið samstarf við Greenfit um heilsueflingu starfsfólks og sér nú þegar mælanlegan árangur. Samstarfið er hluti af markvissri stefnu Olís í átt að heilsueflandi vinnustað og hefur fyrirtækið hlotið viðurkenninguna Heilsueflandi fyrirtæki 2026.
„Við sjáum skýran árangur og jákvæðar breytingar hjá okkar starfsfólki,“ segir Kolbeinn Finnsson hjá Olís
Greenfit og Olís hófu metnaðarfullt samstarf um heilsueflingu starfsfólks á síðasta ári, þar sem markmiðið er að efla vellíðan, auka heilsulæsi og styðja við sjálfbæran árangur í rekstri. Fyrstu niðurstöður sýna nú þegar jákvæðar breytingar hjá starfsfólki á milli ára.
Samstarfið er liður í markvissri lýðheilsustefnu Olís, þar sem lögð er áhersla á að skapa vinnuumhverfi sem styður líkamlega og andlega heilsu starfsfólks. Með samstarfinu fá starfsmenn Olís aðgang að heildrænni heilsumælingu og einstaklingsmiðaðri innsýn í eigin heilsu í gegnum tæknilausn Greenfit.
Greenfit sér um framkvæmd mælinga á starfsstöðvum Olís þar sem mældir eru lykilþættir efnaskiptaheilsu, þar á meðal blóðgildi, blóðþrýstingur, líkamssamsetning og gripstyrkur. Starfsfólk fær aðgang að sínum niðurstöðum í öruggri lausn ásamt fræðslu og hvatningu til úrbóta, á meðan fyrirtækið fær heildstæða yfirsýn án persónugreinanlegra upplýsinga.
Að loknum mælingum veitir Greenfit bæði starfsfólki og stjórnendum áframhaldandi stuðning og ráðgjöf með áherslu á raunhæfar breytingar og aukin lífsgæði.
Sem viðurkenning á þessum metnaði hefur Olís hlotið viðurkenninguna Heilsueflandi fyrirtæki 2026 frá Greenfit, fyrir framúrskarandi framlag til heilsueflingar á vinnustað og fyrir að skapa starfsumhverfi sem styður vellíðan og lífsgæði starfsfólks.
„Ég trúi því að vellíðan sé lykillinn að árangri – bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Með Greenfit viljum við gera heilsueflingu aðgengilega, einfalda og áhrifaríka. Þegar starfsfólk blómstrar, blómstrar fyrirtækið líka,“ segir Lukka Pálsdóttir, stofnandi Greenfit.
„Við hjá Olís höfum þegar séð jákvæðar breytingar á milli ára hjá okkar starfsfólki, bæði hvað varðar heilsu og líðan. Það staðfestir að markviss heilsuefling skilar raunverulegum árangri. Samstarfið við Greenfit styður sterkt við okkar stefnu um heilsueflandi vinnustað og hjálpar starfsfólki að taka upplýstar ákvarðanir um eigin heilsu,“ segir Kolbeinn Finnsson sviðsstjóri mannauðs og rekstrar hjá Olís.
Samstarfið markar mikilvægt skref í átt að aukinni heilsu, vellíðan og árangri – bæði fyrir starfsfólk og fyrirtækið í heild.
Á myndinni má sjá Gígju Sunnevu Bjarnadóttir frá Greenfit, Kolbein Finnsson sviðsstjóra mannauðs og rekstrar hjá Olís og Lukku Pálsdóttir frá Greenfit.
Ljósmyndari Ólafur Már Svavarsson

