
Olís og Landsbjörg undirrita nýjan samning
29. jún. 2026
Olís og Landsbjörg undirrita nýjan samning.
Í hádeginu í gær var Hálendisvakt sumarsins 2026 formlega hleypt af stokkunum þegar Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís, og Guðjón Guðmundsson, varaformaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, handsöluðu áframhaldandi samstarf. Olís hefur verið einn helsti styrktaraðili Landsbjargar undanfarin 20 ár og verður það áfram.
„Við erum ótrúlega stolt af því að vera undirrita núna í dag nýjan samning við Landsbjörg en við höfum verið helsti styrktaraðili þeirra í yfir tuttugu ár,“ sagði Ingunn Svala við undirritun samningsins.
„Við fögnum áframhaldandi samstarfi við Olís, sem hefur verið okkur ómetanlegur bakhjarl í gegnum árin. Það er vel við hæfi að Hálendisvakt Landsbjargar hafi farið af stað sama dag, enda nýtist stuðningurinn einmitt í verkefnum af þessu tagi.“ - Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Landsbjargar.
Í gær var einnig fyrsti dagur Hálendisvaktarinnar. Félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, fengu fyrsta útkall sumarsins á leið sinni suður Kjalveg þegar óskað var eftir aðstoð við að kanna aðstæður ferðamanns í Klakkskála, sunnan Kerlingarfjalla.
Fram undan er sumar þar sem nærri 250 félagar úr 26 björgunarsveitum víðs vegar um landið standa vaktina. Vakt verður í Landmannalaugum og þegar líður á júlí einnig í Herðubreiðarlindum og Nýjadal á Sprengisandsleið.
Lengst verður vaktin í Landmannalaugum, en þar stendur hún fram í byrjun september.

