Logo

Olís er vinnustaður í fremstu röð 2025

16. apr. 2026

Olís er vinnustaður í fremstu röð. Moodup veitir viðurkenninguna vinnustöðum sem sýna fram á að þeim beri gott um starfsfólk og að þeir viðhaldi framúrskarandi starfsumhverfi og er Olís í þeim hópi.

Til að öðlast viðurkenninguna þarf að uppfylla þrjú skilyrði: mæling starfsánægju að lágmarki einu sinni á ársfjórðungi; skjót og traust viðbrögð við endurgjöf starfsfólks, sem sýna að skoðanir þess skipta máli; og að ná ákveðnu árangursviðmiði um starfsánægju samanborið við aðra íslenska vinnustaði. Með því að uppfylla þessi skilyrði sýnir Olís að stjórnendur hlusta á starfsfólk, taka tillit til álit þeirra og hafa náð árangri við að auka og viðhalda háu stigi starfsánægju.

Á myndinni má sjá verslunarstjórana okkar ásamt Davíð Tómasi frá Moodup.