Logo

Olís mótið á Selfossi

07. ágú. 2026

Hið árlega Olísmót, sem knattspyrnudeild Selfoss hefst í dag og verður haldið helgina 7-9. Um er að ræða mót fyrir drengi sem spila í 5. flokk. Líkt og áður á Olísmótinu verður umgjörðin eins og best verður á kosið. Leikið er hratt, stutt á milli leikja og lögð áhersla á faglega og góða dómgæslu.

Í ár eru 25 ár síðan mótið var haldið fyrst en þetta er í tuttugasta skipti sem mótið er unnið í samstarfi við Olís. 

Í fyrsta sinn í sögunni mætir erlent stórlið á Olísmótið en í ár mæta fulltrúar sænska liðsins AIK. Alls verða þátttakendur á mótinu í kringum 700 talsins frá tæplega tuttugu félögum. 

Leikmenn meistaraflokks karla á Selfossi verða með flautuna á mótinu og sjá til þess að allt fari vel fram. Dómararnir verða með gul og rauð spjöld sem verða notuð til þess að undirstrika það að  óvarleg hegðun eða ítrekuð brot hafi afleiðingar. Ef leikmaður fær gult spjald fær hann sér sæti á varamannabekknum í tvær mínútur í svokallaða kælingu. Nýr leikmaður má koma inná í hans stað. Þá gefst þjálfurum tækifæri á að fara yfir málin með þeim aðila sem fékk að líta spjaldið.

Leikið er 8 gegn 8 á stórum völlum sem eru afgirtir til að leikmenn njóti sín betur inni á vellinum og flæðið í leiknum verði betra.

Það er því óhætt að segja að afar spennandi Olísmót sé framundan á Selfossi