Logo

Olís og HSÍ framlengja samstarfið til þriggja ára

03. sep. 2026

 Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) og Olís hafa undirritað nýjan samstarfssamning til þriggja ára. Með samningnum verður Olís áfram aðalstyrktaraðili efstu og næstefstu deilda í handknattleik karla og kvenna, og halda deildirnar nöfnum sínum: Olísdeild karla og kvenna og Grill 66 deild karla og kvenna.

Samningurinn tekur gildi með nýju keppnistímabili og tryggir að eitt lengsta og umfangsmesta samstarf íslensks íþróttalífs haldi áfram. Olís hefur verið aðalstyrktaraðili deildakeppni HSÍ samfellt frá haustinu 2013, þegar Íslandsmótið í handknattleik fékk fyrst nafnið Olís-deildin. Samstarfið hefur verið endurnýjað reglulega síðan, meðal annars með þriggja ára samningi sumarið 2017, þar sem næstefstu deildir fengu nafn Grill 66. Með nýjum samningi stefnir samstarfið því í sextánda árið í röð.

 

Þrettán ár af samfelldu samstarfi

Þegar Olís tók við sem aðalstyrktaraðili árið 2013 var lagt upp með að byggja upp deildakeppnina sem sterkt vörumerki í íslensku íþróttalífi. Á þeim árum sem liðin eru hefur Olísdeildin fest sig í sessi sem umgjörð um sterkustu handknattleiksdeild landsins með aukinni fjölmiðlaumfjöllun, beinum útsendingum og sýnileika sem nær langt út fyrir íþróttahúsin sjálf.

Samhliða hefur Grill 66 deildin skapað sér skýra stöðu sem næsta þrep á leiðinni upp, deild þar sem félög um allt land keppa um sæti meðal þeirra bestu og þar sem ungir leikmenn stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki.

Nýi samningurinn tekur til allra fjögurra deildanna, karla og kvenna, í efstu og næstefstu deild, og byggir á sömu forsendu og fyrri samningar, að deildir karla og kvenna njóti sömu umgjörðar og sama sýnileika.

 

Metár á samfélagsmiðlum

Sýnileiki Olísdeildarinnar á samfélagsmiðlum tók stökk á síðasta keppnistímabili. Á Instagram-miðli deildarinnar var heildaráhorf 15,5 milljónir á tímabilinu 2025/26, dreift á 284 færslur yfir níu mánuði.  Fylgjendahópurinn þrefaldaðist á sama tíma, úr 1.600 fylgjendum í upphafi leiktíðar í 5.000 í lok hennar, sem er 213% aukning.

Þessi þróun er ein af ástæðunum fyrir því að samningsaðilar leggja áherslu á áframhaldandi uppbyggingu á stafrænni miðlun deildanna næstu þrjú árin, í samstarfi við aðildarfélögin.

 

„Það er mikill styrkur fyrir handknattleikshreyfinguna að eiga samstarfsaðila sem hefur staðið með okkur í á annan áratug. Olís hefur ekki bara sett nafn sitt á deildirnar, heldur tekið þátt í að byggja þær upp og styrkja ásýnd handboltans á Íslandi. Þessi samningur gefur okkur það sem íþróttahreyfingin þarf mest á að halda, fyrirsjáanleika til að skipuleggja starfið til lengri tíma." Segir Jón Halldórsson formaður HSÍ 

 

„Handboltinn er hluti af sjálfsmynd okkar sem þjóðar, hann lifir í félögum um allt land og við leggjum mikið upp úr að þjónusta allt landið. Þess vegna er þetta samstarf okkur svo mikilvægt. Við erum stolt af því að hafa fylgt Olísdeildinni og Grill 66 deildinni frá fyrsta degi og hlökkum til næstu þriggja ára, þar sem við ætlum að leggja sérstaka áherslu á að stuðningurinn skili sér alla leið niður í yngstu flokkana." Segir Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís.