Logo

Olís og Lobyco í samstarf

21. sep. 2026

 Olís og Lobyco í samstarf

 Olís og danska fyrirtækið Lobyco hafa hafið samstarf um þróun nýrra stafrænna lausna sem styðja við Vinahóp Olís og bæta upplifun viðskiptavina.

Fyrsta verkefnið sem byggði á samstarfinu var Vinasumar, sem fór fram í Olís-ÓB appinu í sumar og gaf viðskiptavinum kost á að safna sér fjölbreyttum fríðindum og glaðningum með því að versla hjá Olís. Vinasumar markaði upphafið að stærri vegferð þar sem Olís mun á næstu misserum kynna nýjar stafrænar lausnir sem gera viðskiptavinum kleift að njóta aukinna fríðinda, betri kjara, persónulegri upplifunar og meira virði í gegnum appið. Þar má meðal annars horfa til stafrænna klippikorta og fleiri spennandi nýjunga sem skapa viðskiptavinum aukinn ávinning og gera upplifunina af viðskiptum við Olís enn betri.

„Við hjá Olís erum stöðugt að leita nýrra leiða til að gera upplifun viðskiptavina okkar bæði einfaldari og skemmtilegri. Samstarfið við Lobyco gefur okkur öflugan vettvang til að þróa áfram Vinahóp Olís og skapa ný tækifæri til að umbuna viðskiptavinum okkar með fjölbreyttum hætti. Vinasumar var aðeins fyrsta skrefið í þá átt og við hlökkum til að kynna fleiri spennandi nýjungar á næstu misserum,“ segir Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís.

 "Við erum stolt af því að bjóða Olís velkomna sem samstarfsaðila. Samningurinn við Olís er viðurkenning að  Lobyco sé að fylgja þeirri stefnu að búa til vildarkerfi sem var smíðað fyrst með Coop Danmark en skapar nú verðmæti fyrir sterk smásölufyrirtæki um allan heim." segir Ole Buch, forstjóri Lobyco

 Olís er eitt stærsta þjónustu- og smásölufyrirtæki landsins og rekur um 65 stöðvar undir vörumerkjunum Olís og ÓB auk fjölbreyttrar þjónustu um allt land.

 Lobyco er að fullu í eigu Coop Danmark og hefur höfuðstöðvar í Kaupmannahöfn. Fyrirtækið þróar stafrænar lausnir sem hjálpa smásölufyrirtækjum að efla tryggð viðskiptavina, auka þátttöku og skapa persónulegri upplifun í gegnum öpp og aðra stafræna snertifleti.

Á myndinni eru:

 Søren Sundi frá Lobyco, Ingunn Svala Leifsdóttir framkvæmdastjóri Olís, Thelma Björk Wilson, sviðsstjóri smásölusviðs Olís og Jesper T. Søegaard frá Lobyco.

Ljósmyndari Viktor Richardsson