
Páskaborgari Grill 66
26. mar. 2026
Páskahamborgari með bragði frá New Orleans mættur á Grill 66 hjá Olís.
Olís var að kynna nýjan og spennandi páskahamborgara sem sækir innblástur sinn til suðurríkja Bandaríkjanna. Um er að ræða svokallaðan Cajun-hamborgara frá New Orleans sem er eldaður með sérstakri aðferð sem kallast að „blakkera“ kjötið – eldun sem gefur hamborgaranum djúpt, kryddað og örlítið reykt bragð.
Hugmyndin að hamborgaranum kemur frá kokkinum Róberti Ólafssyni, eiganda Forréttabarsins. Þar var þessi vinsæli hamborgari lengi á matseðli og naut mikilla vinsælda meðal gesta. Nú hefur Olís fengið Róbert til liðs við sig til að færa þessa bragðupplifun til breiðari hóps viðskiptavina, rétt fyrir páskahátíðina.
„Þessi hamborgari á rætur sínar að rekja til New Orleans þar sem Cajun-matargerð einkennist af ríkulegu kryddi og kraftmiklu bragði,“ segir Róbert. „Blakkunaraðferðin felst í því að kjötið er kryddað vel og síðan steikt við mjög háan hita þannig að yfirborðið karamelliserast og fær dökka, bragðmikla skorpu.“
Róbert kynntist þessum eldunarstíl á sínum tíma þegar hann starfaði á Hard Rock í Kringlunni, sem var einn vinsælasti veitingastaður landsins á tíunda áratugnum. Þar kviknaði áhugi hans á amerískri matargerð og þeim djúpu, krydduðu bragðheimum sem einkenna Suðurríkin.
Nýi páskahamborgarinn hjá Olís sameinar þessa reynslu og nútímalega nálgun á skyndibita. Með honum vill Grill 66 á Olís bjóða viðskiptavinum upp á eitthvað nýtt og öðruvísi yfir hátíðarnar – bragð sem sker sig úr hefðbundnu úrvali. Segir Haukur Víðisson, veitingastjóri Olís.
Hamborgarinn fæst á Grill 66 um land allt og er einnig fáanlegur á Wolt.
„Við erum mjög spennt fyrir viðtökunum,“ segir Róbert. „Þetta er hamborgari sem hefur sannað sig áður – nú fá enn fleiri tækifæri til að smakka.“

