
Pikkoló og Olís
14. okt. 2026
Þessa dagana er verið að ljúka uppsetningu á nýrri viðbótin við þjónustustöðvar Olís sem eru kældar afhendingarstöðvar Pikkoló sem auka aðgengi fólks að ferskum mat- og dagvörum í nærumhverfinu allan sólarhringinn. Lausn Pikkoló hefur reynst einstaklega vel fyrir þjónustur eins og Eldum Rétt, sem þurfa að afhenda mikinn fjölda pantana á stuttum tíma.
Við hjá Olís erum jafnt og þétt að auka í þjónustu til okkar viðskiptavina og nú tökum við skrefið lengra og horfum til framtíðar, með því að þjónusta einnig fólk sem kýs bíllausan lífstíl eða almenningssamgöngur.
Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi með Pikkoló þar sem þau eru að gera mjög skemmtilega hluti og við hlökkum til frekari uppbyggingar með þeim í framtíðinni. Í dag erum við í fararbroddi í afhendingu pakka sem verslaðir eru á netinu, til dæmis í gegnum samstörf okkar með Dropp, DHL og TVG. Því er þessi lausn Pikkoló frábær viðbót við framtíðarsýn okkar að gera Olís að þægindamiðstöðvum framtíðarinnar.

