
Viðlagakassi Olís skilar hálfri milljón til Rauða krossins
04. feb. 2026
Í maí á síðasta ári hófu Rauði krossinn og Olís samstarf við sölu á Viðlagakassanum á öllum þjónustustöðvum Olís. Viðlagakassinn var settur saman af Olís í samstarfi við Rauða krossinn og er ætlað að geyma nauðsynjavörur fyrir heimilin í landinu ef upp koma neyðartilvik. Ágóði af sölunni rann til Rauða krossins og mun gera áfram. Á dögunum afhenti Olís Rauða krossinum hálfa milljón, ágóða sölunnar til þessa.
„Stuðningur sem þessi gerir okkur kleift að sinna þeirri skyldu okkar að vera viðbúin ef til neyðarástands kemur. Hlutverk okkar sem hjálparlið Almannavarna er skýrt, það er að opna og reka fjöldahjálparstöðvar, söfnunarsvæði aðstandenda, skráningar og úrvinnsla þeirra, sálfélagslegur stuðningur og aðkoma að rekstri þjónustumiðstöðva Almannavarna,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum.
Mikil eftirspurn hefur verið eftir Viðlagakassanum en hugmyndin kemur í kjölfar átaksins „3 dagar – Ertu klár?“ á vegum Rauða krossins. Markmiðið með kassanum er að heimili landsins geti verið sjálfbær í a.m.k. þrjá daga, verði rafmagns- eða vatnsleysi. Viðlagakassinn inniheldur meðal annars handhægt útvarp sem nýtist einnig sem ljós og hleðslutæki, prímus og gashylki, skyndihjálpartösku, fjölnotaverkfæri, rafhlöður og kerti. Frekari upplýsingar um átakið er hægt að nálgast hér.
„Við hjá Olís erum ótrúlega stolt að taka þátt í átaki sem þessu og leggja okkar af mörkum til þess að styrkja stöðu Rauða krossins sem hjálparlið Almannavarna. Almannavarnir eru okkur hjartans mál og því er ánægjulegt að segja frá því að Viðlagakassinn verður áfram til sölu á öllum þjónustustöðum Olís. Ágóði sölunnar mun að sjálfsögðu áfram renna áfram til Rauða krossins og því hvetjum við alla til þess að kynna sér þetta átak og styrkja málefnið,“ segir Thelma Björk Wilson, sviðsstjóri smásölusviðs Olís.

