
Vinasumar
23. jún. 2026
Vinasumar – Þú færð meira hjá Olís!
Vinasumar er hafið í Olís – ÓB appinu, viðskiptavinum gefst kostur á að safna sér inn fjölbreyttum fríðindum og glaðningum með því einu að versla. Leikurinn fer alfarið fram í gegnum Olís – ÓB appið og eru hvorki meira né minna en 21 vinningar í boði á mann í sumar.
Þú færð meira hjá Olís
Hugmyndin að baki Vinasumrinu er einföld: Viðskiptavinir safna skrefum þegar þeir versla og fá verðlaun að launum. Allt sem verslað er á þjónustustöðvum Olís, hjá ÓB, á bílaþvottastöðvum Glans, Grill 66 og Lemon mini telur í söfnuninni. Undanskilin eru þó einungis Glans áskriftir og gassjálfsalar.
Verðlaunin eru af ýmsum toga og geta viðskiptavinir meðal annars fengið kaffibolla, hamborgara og ís. Af öðrum girnilegum glaðningum sem í boði eru má nefna pylsu og Pepsi Max Lime, Lemon samlokur, Doritos snakk, Haribo nammi, staka hamborgara og heilar hamborgaramáltíðir á Grill 66, svo eitthvað sé nefnt.
Einfalt að taka þátt í appinu
Til þess að vera með þurfa viðskiptavinir að hafa Olís – ÓB appið í símanum sínum. Ferlið er hugsað sem „Safna > Virkja > Versla“. Þegar skrefi í söfnuninni er náð þarf viðskiptavinur að passa að virkja áunnin fríðindi í appinu áður en verslað er. Hægt er að vitja glaðninganna í allt að tvær vikur eftir að tilteknu skrefi hefur verið náð.
Söfnunin stendur yfir í allt sumar en henni lýkur þann 18. ágúst. Vinasumarið er því kjörið tækifæri fyrir ferðalanga til að gera vel við sig á flakkinu um landið í sumar.

