Logo

Um Olís

Gæðastefna

Útgáfa 4.0

Olís er verslunar- og þjónustufyrirtæki á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða upp á samkeppnishæfar vörur sem mæta þörfum og væntingum viðskiptavina og að reka hagkvæmt sölu-, dreifingar- og þjónustukerfi fyrir allt vöruframboð Olís.

Það er stefna Olís að vera leiðandi fyrirtæki á Íslandi á sínu sviði hvað varðar hagkvæmni í rekstri, þjónustu við viðskiptavini, gæði vöruframboðs og ábyrgð gagnvart samfélaginu, þar sem sérstök áhersla er lögð á stuðning við umhverfismál, félagasamtök og íþróttastarfsemi. Olís leggur jafnframt áherslu á að vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og starfsánægja er höfð að leiðarljósi.

Olís leggur áherslu á:

  • Að þróa og viðhalda gagnsæju stjórnkerfi til að halda utan um gæðamál félagsins.
  • Að vinna eftir ISO 9001 gæðastjórnunarstaðlinum til að stuðla að stöðugum umbótum.
  • Að fara að lögum og reglum í allri sinni starfsemi.
  • Að mæta óskum viðskiptavina og birgja eins og frekast er unnt.
  • Að starfsfólk sýni gott viðmót og veiti framúrskarandi þjónustu.
  • Að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki sem veitt er tækifæri til starfsþróunar og símenntunar.
  • Að starfsmenn fái hvatningu til að sýna frumkvæði í störfum og geti haft áhrif á þróun fyrirtækisins.
  • Að skapa gott vinnuumhverfi sem stuðlar að ánægju og vellíðan í starfi.
  • Að kolefnisjafna starfsemi sína.
  • Að stuðla að sjálfbærni á sem flestum sviðum og virkja umhverfis- og samfélagsvitund starfsfólks.
  • Að hvetja til nýsköpunar og framþróunar á starfsemi fyrirtækisins.

Framkvæmdastjóri Olís ber ábyrgð á að allir starfsmenn félagsins þekki og skilji gæðastefnuna og hafi hana að leiðarljósi í störfum sínum

FM 646169