Glans

Notkunarskilmálar fyrir Glans

1.            Um þetta skjal

1.1.         Þetta skjal inniheldur þá skilmála (hér nefndir notkunarskilmálarnir) sem gilda þegar viðskiptavinur okkar (hér nefndur viðskiptavinur eða þú) kaupir einskiptisaðgang að sjálfvirku bílaþvottastöðvum okkar, Glans (hér nefndar Glans). Netfang Glans er glans@glans.is. Glans er starfrækt af okkur, Olís ehf., kt. 500269-3249 (hér nefnt seljandi eða við), Skútuvogi 5, 104 Reykjavík, s. 515 1000. Við sérhæfum okkur í sölu og þjónustu með eldsneyti og aðrar olíuvörur, auk skyndibita, ýmissa nauðsynjavara fyrir bílaeigendur ásamt fjölþættri þjónustu við sjávarútvegs-, verktaka- og flutningafyrirtæki um land allt. Við erum í eigu íslenska hlutafélagsins Hagar hf., kt. 670203-2120.

1.2.         Í notkunarskilmálunum er fjallað um skilyrði þess að nota Glans, auk ýmissa annarra atriða um hana.

1.3.         Notkun Glans er með öllu óheimil nema í samræmi við ákvæði notkunarskilmálanna.

1.4.         Notkunarskilmálarnir eru ávallt aðgengilegar á vefsíðu Glans, glans.is. Við áskiljum okkur rétt til að breyta skilmálunum án fyrirvara. Í lok þeirra kemur ávallt fram hvenær núgildandi útgáfa tók gildi til þess að þú getir séð hvort þeir hafi breyst frá því síðast þegar þú notaðir Glans.

2.            Notkun Glans

2.1.         Hægt er að kaupa bílaþvott í Glans annað hvort í hvert skipti fyrir sig (einskiptiskaup) eða í áskrift. Þessir skilmálar gilda um einskiptiskaup að Glans.

2.2.          Þjónustan er notuð með því einfaldlega að aka bifreið að innakstursdyrum á einhverri af sjálfvirkum bílaþvottastöðum Glans, samþykkja þessa notkunarskilmála á skjá og greiða fyrir. Þar les þar til gerð myndavél bílnúmer framan á bifreiðinni og opnar dyrnar. Það er á þína ábyrgð að númerið sé heilt og læsilegt en ekki t.d. hulið snjó eða óhreinindum.

2.3.         Þér er einungis heimilt að nota Glans fyrir bifreið sem þú hefur ótvíræðan yfirráðarétt yfir, svo sem ef þú ert skráður eigandi hennar og eingöngu ef þú hefur gild ökuréttindi hér á landi.

2.4.         Þér ber ávallt að fara í hvívetna að þeim leiðbeiningum og reglum sem gilda um notkun bílaþvottastöðva Glans og eru birtar þar á skjá, skiltum eða eru gerðar viðskiptavinum aðgengilegar á annan hátt, svo sem um að hafa allar rúður bifreiðar skrúfaðar upp og dyr lokaðar á meðan á þvotti stendur og hvort og hvenær beri að hemla eða aka af stað, drepa á eða ræsa bifreið og setja bifreið í hlutlausan gír. Þá er alfarið óheimilt að reyna að nota Glans fyrir bifreið sem er stærri en hámarksstærð viðkomandi þvottastöðvar eða bifreið sem er með óhefðbundinn utanáliggjandi aukabúnað eða breytingar. Mikilvægt er að þú hafir í huga að farir þú ekki að öllum þessum leiðbeiningum og reglum eða hagir þér ógætilega í Glans kann það að hafa í för með sér tjón á eignum eða jafnvel líkamstjón. Við berum enga ábyrgð á tjóni sem rakið verður til slíkrar vanrækslu þinnar. Þá skal sérstaklega tekið fram að Glans er ekki ætlað til notkunar fyrir bifreiðir með óhefðbundnum eiginleikum, svo sem fornbifreiðar, eða neins konar lausahlutum, svo sem þakbogum, viðbættum speglum eða dráttarkrókum og berum við enga ábyrgð á tjóni sem hlýst af slíkri notkun, hvorki á viðkomandi bifreið, lausahlutum eða öðru. Við berum hvorki ábyrgð á eðlilegu sliti sem búast má við af notkun þvottastöðva fyrir bifreiðar, svo sem litabreytingar eða minniháttar rispur, né á tjóni sem verður á bifreiðum sem eru þegar skemmdar eða hafa hlotið ónóga eða ranga meðferð, svo sem ef laust lakk flagnar af í þvotti eða tæring verður þar sem ryð er til staðar. Þá berum við ekki ábyrgð á tjóni sem verður af orsökum sem við höfum ekki beina stjórn á, til dæmis rekstrartruflunum, bilunum í búnaði, hugbúnaðarvillum, truflunum á fjarskiptum, rafmagnsskorti eða breytingum á vatnsþrýstingi. Ábyrgð okkar nær í engum tilvikum til óbeins eða afleidds tjóns, svo sem ófjárhagslegs tjóns, tekjutaps eða tapaðra afnota. Þú berð ábyrgð á að þjónustan henti ökutæki þínu og að það sé í því ástandi að hægt sé að nota þjónustuna án þess að skemmdir eða annað tjón hljótist af. Þú berð einnig ábyrgð á bæði beinu og afleiddu tjóni okkar af því að þú vanrækir skyldur þínar samkvæmt skilmálum þessum.

2.5.         Með því að samþykkja skilmála þessa samþykkir þú að halda okkur, starfsfólki okkar, verktökum, stjórnendum, eigendum og samstarfsaðilum að fullu og öllu skaðlausum af hvers kyns kröfum, svo sem um miskabætur eða skaðabætur, sem kunna að rísa í tengslum við háttsemi þína í eða við bílaþvottastöðvar Glans.

2.6.         Eftir að ekið er inn í bílaþvottastöð Glans taka öryggismyndavélar upp ferðalag bifreiðarinnar í gegnum stöðina í öryggis- og eignavörsluskyni, þar á meðal til að hægt sé að upplýsa ef óhapp verður við þvottinn og miðla slíku myndefni t.d. til lögreglu eða tryggingarfélags. Á skiltum fyrir utan og við inngang að stöðvunum er vakin athygli á rafrænni vöktun í Glans og vísað á hvar frekari fræðslu er að finna um hana. Nánari upplýsingar um vöktunina má einnig nálgast á vefsíðu Glans, sbr. 1.4 hér að framan.

2.7.         Við starfrækjum á hverjum tíma eina eða fleiri bílaþvottastöðvar undir merkjum Glans og áskiljum okkur rétt til að breyta opnunartíma þeirra, fjölga þeim, færa þær eða fækka þeim án fyrirvara.

2.8.         Okkur er heimilt að meina viðskiptavini um aðgang að bílaþvottastöðvum Glans, svo sem ef hann hefur brotið gegn notkunarskilmálunum, veldur tjóni á Glans eða reynir að nota Glans án þess að greiða fyrir, en einnig ef við gerum breytingar á Glans eða leggjum niður þjónustuna. Valdi viðskiptavinur okkur tjóni þá áskiljum við okkur rétt til að krefja hann um skaðabætur.

3.            Gildandi lög, samningsvarnarþing og útgáfa skilmálanna

3.1.         Ef þú ert einstaklingur og kaup þín á þjónustu Glans eru ekki í atvinnuskyni eða í tengslum við starf þitt þá ganga ákvæði laga um þjónustukaup, nú nr. 42/2000, framar ákvæðum skilmála þessara en að öðrum kosti ekki.

3.2.         Um notkunarskilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi dómsmál um ágreining milli aðila í tengslum við þá skal það mál rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.

3.3.         Seljanda er allt að einu heimilt að leita aðstoðar dómstóla og stjórnvalda hvar í heimi sem er til framkvæmdar aðfarargerða eða annarra sambærilegra ráðstafana til að tryggja réttindi sín og fá skyldur samkvæmt notkunarskilmálunum uppfylltar.

3.4.         Þessi útgáfa notkunarskilmálanna er frá 24. janúar 2026 og gildir um öll kaup og notkun á þjónustu Glans sem eiga sér stað frá og með þeim degi.