Um Olís
Jafnlaunastefna
Útgáfa 10.0
Jafnlaunastefna Olís 2024 - 2027
Olís hefur innleitt jafnlaunakerfi sem nær til allra starfsmanna og inniheldur jafnréttisáætlun og byggist jafnlaunastefna Olís á henni. Tilgangur Olís með jafnlaunakerfi er að tryggja jafnrétti og jafna stöðu starfsmanna óháð kyni innan fyrirtækisins. Markmiðið er að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundinn mismunur eigi sér stað. Með jafnréttisáætluninni eru stjórnendur og aðrir starfsmenn jafnframt minntir á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, búsetu, aldurs og stöðu að öðru leiti og að nýta beri til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu, hæfni og viðhorfum starfsmanna.
Launajafnrétti
Starfsmönnum skal ekki mismunað í launum og þau skulu þeir njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt eða sambærileg störf sem og hvers konar frekari þóknana óháð kyni. Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hver önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár. Jafnlaunastefna er unnin í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem og önnur lög sem tryggja jafnrétti. Jafnlaunastefnan er hluti af launastefnu fyrirtækisins. Mannauðsstjóri Olís ber ábyrgð á að stefnunni sé framfylgt og skal vera meðvitaður um að stöðugar umbætur þurfa að eiga sér stað. Yfirstjórn skal setja fram jafnlaunamarkmið og rýna jafnlaunakerfið árlega. Jafnlaunamarkmið skulu endurskoðuð út frá niðurstöðum launagreiningar. Stjórnendur skulu einnig skuldbinda sig til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frávikum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu.